Færsluflokkur: Bloggar
Laugardagur, 8. nóvember 2008
Ég hef ekki orku í þetta...
Orðið KREPPA kemur fram í öðru hvoru orði sem maður les, heyrir eða talar, því að umræðan snýst ekki um neitt annað. Hvar sem 2 eða fleir eru saman komnir er ekki um annað rætt eða hugsað. Það dynja endalaust á okkur fréttir af hinum og þessum sem hafa ekkert sagt eða sagt of mikið ... Stjórnmálamenn halda enndalausta fréttamannafundi og blaðra útí eitt á tungumáli sem almenningur skilur ekki ... fyrir utan það að þeir segjast endalaust vera að leysa málin en ekkert gerist. Upp eru komnar milliríkjadeilur sem einginn vill bera ábyrð á eða leysa... Peningarnir mínir verða að eingu og gæti maður alveg eins borgað með heima prenntuðum 10.000,- seðlum því virðið er ekki meira en plekið sem notað er og pappírinn... Það kraumar undir niðri í öllu samfélaginu mikil reiði, ásakanir, sorg, ofsi og vonleysi sem maður finnur strax og maður fer út á meðal fólks... fólk er niðurlútara, með höku niður í bringu og augnaráðið er dautt eða fullt af heift og reiði... það verður mun minna um það að fólk brosi og bjóði góðann daginn til nágranna síns eða á göngustígunum í Kjarna... Maður vogar sér varla að fara í verslunamiðstöðvar vegna þess banlega orkuflæðis sem skapast í kríngum þá stað þar sem peningar stjórna. Þetta finn ég mjög greinilega á orkunni minni og þarf ég sérstaklega að brynja mig áður en ég fer á meðal fólks því sú neikvæða orka sem umvefur samfélagið núna gerir það að verkum að ég hreinlega hníg niður og vissi máttinn alveg... Ég vildi svo gjarnan að ég gæti gefið samfélaginu þá sýn sem ég hef á þessa stöðu og þá orku sem ég haf ákveðið að nota að svo stöddu. Ég hef nefnilega ekki leyft þessu að hafa áhfrif á mig og í raun hefur þetta ekki náð að raska ró minni... því að það er ekki svo langt síðan að ég stóð frammi fyrir því að vita ekki hvort barnið mitt myndi halda lífi, eða halda heilsu það sem eftir væri, og þegar sú staðreind kom upp þá fann ég hvernig allt sem tengist peningum, veraldlegum auð og hégóma verður einsis virði... þetta var eins og í bíómyndunum ... bara púfff það hvarf með reyk og smá sprenginu. Eftir situr bara óskin um heilbrygði og ást, hamingja og gleði, fjölskyldan og vinir, samvera og þakklæti....... þetta kostar ekki peninga. Ég hringdi um daginn útaf bílaláninu mínu og fékk að ég vita að það væri farið úr 400.000,- í 870.000,- og ég hló af manninum sem ég talaði við.. honum brá greinilega vegna viðbragða minna og hafði orð á því að ég væri eina manneskjan sem hefði hringt og brugðist við með gleði og skilningi og hann þakkaði fyrir það... Vitið þið.. !!! þetta hreifði EKKKERT við mig og hugsaði með mér ... þeir taka þá bara bílinn, ég get lifað góðu lífi án hans... Ég hreinlega hef ekki orku eða tíma fyrir neikvæðni núna... lífið er alltof dýrmætt til að eiða tímanum í það ... þetta á eftir að taka langan tíma að jafna sig og vá hvað verður búið að fara mikil orka í neikvæðni þá... og það þýðir ekki ... það tekur frá manni það sem ekki kostar pening... hamingjuna, ástina, gleðina, þakklætið, samveruna, heilbrygðið og margt fleira.
Með þessum orðum vil ég óska ykkur góðrar helgar og sendi allt það ljós sem ég get út til ykkar kæru lesendur... Guð geymi ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 5. nóvember 2008
Bakslag... og gæsahúð...
Góða kvöldið kæru lesendur...
Eitt af því fyrsta sem ég gerði í morgun vara að skoða fréttirnar til að sjá hvernig Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru... ég var ekkert smá ánægð með úrslitin... og er ég viss um að þessi úrslit komi tilmeð að marka tímamót fyrir alheiminn. Ég hreinlega fékk gæsahúð þegar ég sá sigurræðuna Obama og sá svipbrigði áhorfendanna sem voru viðstaddir það... lotning, geðshræring og gleði skeyn úr augum þeirra. Frábær niðurstaða og tími til kominn að sjá breitingar í alheimspólitíkinni... Núna er bara að fá kosningar hér á landi í vor.
Það var smá bakslag hjá Hetjunni minni í dag... hann hneig niður í skólanum í morgun... náfölnaði og missti allan mátt... ég rauk af stað og á leiðinni hringdi ég uppá spítala og þær sögðu mér að koma strax með hann uppá barnadeild, sem ég og gerði. Snúður var semsagt á spítalanum í dag í allskonar rannsóknum til að leita af sér allan grun um að þetta væri eitthvað alvarlegt. Niðurstaðan var sú að þetta hefði verið eðlilegt aðsvif vegna mikilla lyfjatöku á lyfjum sem valda blóðleysi og þá geti svona atvik átt sér stað.
Það er víst ekkert við því að gera annað en að vita af því og tryggja að hann fái næga næringu svo að hann haldi orku. Svo geta sumir dagar verið verri en aðrir þannig að við verðum bara að spila þetta eftir hendinni. Einnig kom niðurstaða úr rannsókn sem var gerð á eyrnamerg sem var tekin úr veika eyranum og kemur í ljós að það er ennþá lifandi sýkill í eyranu... það er nokkuð sem við áttum í raun ekki vona á eins og þetta er búið að ganga vel síðustu mánuði... EN... það þýðir ekki að græta það við verðum bara að halda áfram á þessari braut sem við erum á núna. Eftir þessa niðurstöðu er komin upp sú staða að það er líklegt að Hetjan mín þurfi að fara í sinn stæðsta uppskurð hingað til (sem var frestað vegna batamerkja) en er komin í umræðuna aftur núna... sá uppskurður myndi gera það að verkum að það verður ekki hægt að hjálpa honum með heyrn á hægra eyra í framtíðinni hvorki með uppbyggiaðgerð ná heyrnatækjum... þetta myndi líka þýða það að hann ætti mun erviðara með að fara með eyrað í vatn í framtíðinn og það þyrfti að hreynsa útúr því líklega nokkrum sinnum á ári alla hans ævi.
Þannig að við vonumst jú auðvitað að til þess þurfi ekki að koma... En tíminn einn leiðir það í ljós... á meðann njótum við þess að hafa það frelsi til að vera heima og reynum að njóta hvers dags sem við höfum...
brosum með hjartanu einn dag í einu...
Hetjan mín fékk að ráða hvað yrði í matinn, þegar var búið að útskrifa okkur af spítalanaum... Hann ákvað að það ætti að vera jólakjöt með öllu í matinn... þannig að við fengum forsmekk jólanna í matinn...
léttreyktar grísakódelettur, hunangs/karalmellu kartöflur, rauðkál, baunir, rappabarasultu og súrar gúrkur... Bara gott...
Jæja, núna ætlum við að kúra okkur uppí mjúku holunninni okkar og horfa á Indjana Jóns saman... og fara snemma að sofa til að safna orku fyrir daginn á morgun sem á að vera betri en í dag...
Guð geymi ykkur öll...
Knús í bloggheim...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 3. nóvember 2008
gott að vakna við svona sendingu...
Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúra um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.
Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.
Og eftir litla stund ég vel að fara á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít.
Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þetta er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.
Já ... það voru ekki bakverkir sem héldu okkur mæðginunum heima í dag heldur veikindi hjá Hetjunni minni... Hann er með hita þessi elska ... og ég er með ströng fyrirmæli um hvað skal gera í þannig málum...hann má ekki fara yfir 38c°... annas er það bara FSA sem gildir... en það er nú ekki komið að því ... Lyfin geta haft þessi áhrif á snúðinn og þá er bara að slaka á og láta þetta líða hjá...
Ég er búin að komast að því að msn er ágætir fjarkennslubúnaður... því ég er búinn að sitja við tölvuna síðan kl.9 í morgun og leiðbeina og kenna nemendum mínum í gegnum þann búnað... bara gott mál.. þau eru nátturulega mjög áhugasöm og iðin upp til hópa og þá gengur þetta allt betur.
En jæja best að halda áfram með daginn ... og ég vel að hann sé góður... takk Jokka fyrir fallegu morgunsendinguna...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 2. nóvember 2008
Hér er ró, hér er friður, hér er hreint og fínt...
Góða kvöldið kæru lesendur...
Já ég er búinn að gera jólahreingerninguna... hehehe....ja allavega tók ég skápa, loft, hólf og gólf í gegn þessa helgina... OOOOOOOOOOHHHHHHHHHHHH...
hvað þetta er gott í sálinni... en vont fyrir bakið... en ánægjan yfirgnæfir verkina... Ég henti 3 fullum ruslapokum í þessari hreingerningu, kláraði heilan brúas að hreingernigasáðu, fann helling af hlutum sem ég hef saknað og hlakka mikið til að fara í heitt bað á eftir og í hreint rúmmið...
það verður alltí lagi að vera með bakverki næstu vikuna eftir svona skorpu... því það er ekkert sem liggur á eftir svona..hehehe.. en auðvitað vona ég að þetta verði allti í lagi... En það kemur í ljós.
Það eru massívar vikur frammundan hjá mér þannig að ég ákvað að hreinsa til í kringum mig núna svo að það liggji ekki á mér þessa daga...
Hetjan mín er hress... hafur endalaust orku þessa dagana og ætlast til þess að mamman hafi það líka.. sem hún hefur ekki alltaf ... Hann var hjá Ömmu sinni föstudag til laugardags og fannst það ÆÐI... ekki síður að fá að fara með Hallgrími út í bílskúr til að fá að smíða.. það var pungturinnfyrir I-ið...
Þannig að helgin hefur nýst okkur mjög vel mæðginunum og ætlum við snemma í rúmmið til að hvílast vel fyrir morgundaginn þegar hverstaksleikinn heldur áfram.
Jæja... mig langaði bara aðeins og láta heyra frá mér.... Guð belssi ykkur öll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 31. október 2008
Smá fiðringur ....
1.376 þeirra sem komust í úrslit ADFEST, FIAP, ADC*E og Goldem Drum munu taka þátt í keppni sem nefnist Intercontinental Advertising Cup. Þar mun verða keppt til 190 viðurkenninga, 38 bikara og aðalverðlauna sem kallast The Grand Cup.
Dómnefnd mun hefja störf 4. nóvember í Bled í Slóveníu og mun samanstanda af fólki með mikla þekkingu á kúltúr þeirra landa sem taka þátt.
Allt verður þetta svo tilkynnt 13. nóvember á heimasíðunni Adforum. Almenningur fær þá frían aðgang að öllum auglýsinunum og viðtölum við dómnefnd í 24 klukkustundir. Um að gera að grípa gæsina.
Það skal viðurkennast að það fer smá fiðringur um mig þegar ég les þessa fréttatilkynning ... því ég er víst ein af þessum 1.376 aðilum... Ég er ekki viss um að það verði mér auðvelt að bíða til 13.nóv eftir úrslitunum... en það verð ég vist að gera.. hehehee... Semsagt skvísan er að taka þátt í heimsmeistara keppni Grafískra hönnuða... sem er ekkert smá dæmi... og í rauninni skil ég þetta ekki ennþá...
en það hlítur að koma að því ... því mér skilst að á álíka tíma og úrslit heimsmeistarkeppninar eru gerð góðkunn þá er líka afhending verlaunnann sem ég fékk í sumar... hehehehe.. þannig brækurnar eru fullar af hjarta... hehehehe.... er á einhvern hátt hægt að ná lengra í fagi sem maður er nýútskrifaðu úr... mér er eigilega spurn..!!... mér finnst þetta allt allavega voðalega óraunverulegt og skrítið eitthvað...
Jæja... nóg um þetta .. ég skrifa meira síðar...
knús og kossar í bloggheim...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 27. október 2008
Lífið heldur áfram... í klaka og snjó...
Já... hér í bæ er allt á kafi í snjó... og man ég ekki eftir svona miklum snjó í mörg ár... Það er ekki laust við það að það læðist að manni smá tilhlökkun til jólanna sérstaklega því að ég var að gera ljólaauglýsingu um helgina... hehehe... já ég veit það er of snemmt nema að ég ætla að vera snemma í því þetta árið ekki spurning... er meira að segja búinn að ákveða og kaupa nokkrar jólagjafir og við mæðginin erum byrjuð að safna að okkur jólakortum og myndum svo að það stefnir í að við sendum frá okkur jólakort þetta árið...En allaveg verður snjórinn til þess að skíðin fara að koma útúr geymslunni fljótlega... strax og fjallið opnar verðum við mæðginin mæt...
Í dag var fyrsti dagurinn sem kennari við Myndlistaskólann á Akureyri... dagurinn gekk vel ... "held ég!!" soldið skrítið að sitja þessum meginn við borðið... en þetta verður í góðu lagi og held ég örugglega að ég hafi helling til að kenna þeim ... Ef ég hugsa til baka þá er ég víst búinn að vera í kringum listir og hönnun síðan 1989... það eru huhuhuuummmm 19 ár... úfff ég er ekki svona gömul... hehehee...
Hetjan mín er ágæt eftir daginn... en þessi elska er ennþá alltaf þreytt eftir dagana vegna áreytisinns sem eru í skólnum allan daginn en ég er alltaf að bæta meira og meira við hans líf svo að við náum að hafa það eins og lífið var fyrir jan.´08 ... Hann byrjar í smá tíma í vistun núna um mánaðarmótin og bætum svo smár meiri tíma við smátt og smátt... En hann er búinn að vera rosalega glaður og góður við alla ... Hann er svo mikil hetja.. brosir oft á dag ... kemur til mín og knúsar mig að óþörfu og er svo innilegur... Mér sýnist ég bara vera að fá vel þroskaðan og yndislega góðann derng útút þessumhremmingum okkar... Hann hefur breist svo í karagter ... hann er farinn að sjá tilfinnag sínar, tekur útúm vini sína þegar þeir fara... hann er almenn svo kurteis , hann sýngug endalust... Það hefur líka verið minna af ADHD einkennum hjá honum síðusta mánuðinn... ÆÆÆÆ Iiiiii bara hann er yndislegur... og svo góður við mömmu sína... nudda á henni bakið því hann veri að mér finnst það gott o.s.f.
Jæja kæru lesendur ég ætla að hafa þetta ekki leingr í dag... Snemma í háttinn svo ég verði miðlunafær í bítið á morgun... :o)
Guð geymi ykkur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Sunnudagur, 26. október 2008
Næturbrölt...
Já... klukkan er 5 um nótt og ég gat ekki sofið... það er svosem eingin sérstök ástæða þess að ég skula ekki geta sofna... allavega held ég ekki... Þetta er ekki eins og hefur verið í gegnum síðasta árið að ég hef ekki getað sofið fyrir álagi, streytu, hræðslu, hvíða, ofurhuga eða ofkeyrslu... Núna bara get ég ekki sofið... reyndar tók ég eingin svefnlyf í kvöld en mér fannst ég ekki þurfa þess... Mér líður vel, eingir verkir, ekkert sem ég ógert ( annað en að þrífa... en það getur beðið), það er ekkert að angra mig... Þannig að ég leifi mér bara að lesa smá og svo að setjast niður hér og pára nokkrar línur inní bloggheim...
Ég er búin að sitja meirihlutan af deginum hér við tölvuna og klára að vinna kennsluefni sem ég ætla að nota þegar kennsla hefst á mánudagsmorguninn... Það verður gaman að takast á við þetta verkefni og sjá hvaða þroska og lærdóm það felur í sér... því ég geri allt í lífinu með þeim tilgagni að verða betri á morgun en í dag... kannski má það segja að það er lífsmóttóið mitt... Lífið er stæðsti skólinn sem maður kemst í og ég var svo leingi ómeðvituð í þeim skóla og endalaust í fórnalambshlutverkinu... En svo fékk ég nýtt tækifæri til að lifa lífinu lifandi... og má segja að ég er í rauninni bara 4-5 ára...hehehee... já eða við skulum segna að vakning mín sé 4-5 ára, vakning mín fólst í því að fara í gegnum 12-sporin hjá Akureyrirarkirkju undir handleyðslu Jónu Lísu... Þetta prógram gaf mér tilgagn og vonina sem ég hef ætíð ríg haldið í og verður hún það síðasta sem ég missi... það er vonin...
Hetjan mín er farin að sýna sínar gömlu hliðar um helgara... það er leiði og pirringur yfir því að hafa ekki félagsskap jafnaldra sinna... það á það til að taka á samband okkar, sem er bara holt því að þá nær maður í leiðinni hægt og rólega að koma gömlu reglunum aftur í sitt far þannig að lífið geti gengið sinn vana gang eins og hægt er... Blóðprufurnar hans hafa verið betri síðustu 2 vikurnar þannig að blóðbúskapurinn er að ná sér í lag eftir smábreytingu á lyfjunum um daginn þegar kom í ljós að hvítu og rauðublóðkornin voru komin í mjög lágar tölur. En allt á réttri leið núna... bíðum bara eftir kallinu suður í Heyrna og talmeinastöðina... OOOooo hvað ég hlakka til að geta veitt barninu mínu eins eðlilegt líf og hægt er fyrir hans mein... hann á eftir að vera undrandi því að núna er hann hættur að gera sér grein fyrir því hvernig þetta var.. Það er liðin það langur tími...
Jæja... ég ætla nú ekki að vaka í alla nótt, þannig að það væri nú ráð að koma sér undir sæng og pína fram smá dúr...
Guð geymi ykkur kæru lesendur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 24. október 2008
Kerti í vondu veðri...
Ég sit hér við tölvuna með kertin kveikt allt í kringum mig á meðann vindurinn og hríðin lemur allt hér að utan... Ég er alveg að reyna að láta þetta ekki fara í taugarnar á mér því hér nuðar inn um alla glugga og þakgluggarnir hristast í fölsunum... Ég er búinn að senda Búseta nokkur brét og hringja í þá síðustu 2 árin til að reyna að fá þá hingað til að laga þetta en ... ekkert gerist enn... en þá er bara að hafa góða tónlist á sem yfirgnæfir nuðið í gluggunum... hækka í öllum ofnum og kveikja á öllum kertum sem ég á...
Hugsa fallegar hugsanir ... og í þessum fallegu hugsunum þá tók ég myndina hér fyrir ofan af mynd sem er mér mjög kær hér á hillunni minni... og ákvað að setja smá texta á hana... hehehe... svona smá skilaboð frá mér úr vetrinum...
Hetjan mín fór í langa og flókna heyrnamælingu í dag hjá Heyrna og talmeinastöðinni hér fyrir norðann... úff ég er ekki hissa á að hann hafi verið þreyttur á þessu ... þetta tók meira en klukkutíma með allskona píp, suð og hávaða í eyrunum... Sum hljóðin þurfti að spila svo hátt fyrir hann... en hann heyrði þá ekki en ég heyrði þá framm... vá... þvílíkt ískrandi hljóð... en niðurstaðan er sú að við þurfum að fara suður fljótlega í aðra mælingu og til annara sérfræðinga... því að Hetjan á að fá heyrnatæki sem gæti hjálpað honum mjög mikið... það verður líka mikil breyting fyrir mömmuna að þurfa ekki að hafa allt á hæðstu stillingu og að rómurinn á hæðstu tónum...
jæja... ég ætla að halda áfram að bralla hér..
Guð geymi ykkur öll...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 22. október 2008
Haustpest í gangi...
uummm ... við fáum einn snúllu dag hér heima núna í dag... það kemur reyndar ekki af góðu en við njótum þess að dunda okkur hér smana núna... við erum nefnilega bæði með einhverja smápest smá hiti og magaverkir.. En þetta er ekkert sem verkjatöflur halda ekki niðri ... hehhee.. þannig að við erum bara í rólegheitunum hér að dunda okkur... Hetjan mín er inní herberginu sínu að kubba og söngla... og ég sit hér við tölvuna og er að búa til kennsluefni... því kellan er að fara að kenna í næstu viku og framm að jólum... Jammm.. ég hlakka mikið til því þetta er svo skemmtilegur vetvangur til að hafa samskipti og jafnvel fyrir mig að læra nýja hluti líka... Þetta er líka námsefni sem ég nota mikið á hverjum degi og kann útí eitt... þannig að ég hlakka til að geta miðlað þekkingu minni áfram...
Ég frétti í gær að evrópu verðlaunin mín séu komin til landsinns... eftir allan þenna tíma ...en svona vinnur ADC*E víst... ooo ég hlakka svo til að fá hann í hendurnar... en það verður víst ekki alveg á morgun því að Formaður FÍT ætlar að koma norður í byrjun Nóv. og afhenda hann sjálfur hér fyrir norðann... Það sagði mér lítill fugl að griðurinn væri veglegur... heheheh.. úúffff... ég fæ fiðrildi í magan... en samt vona ég að það verðið nú ekki of mikið húllum hæ í kringum þetta því ég er eitthvað svo feimin við fjölmiðla... en þannig er það nú bara ... maður er ekki evrópumeistari á hverjum degi... Jæja best að róa fiðrildin og ná í táslurnar á mér út 7himni.. og koma mér niður á jörðina og gera eitthvað...
Ég er enn mjög glöð og kát með lífið og tilverun... og nota bene... ég er búinn að vera frá Kóki síðan á föstudaginn síðast... 6 dagar og nú er bara vatnskanna mér við hlið... ekkert smá glöð með sjálfan mig eftir að hafa verið Kókisti í tugi ára... Reyndar leyfi mér mér epla-krista... "og það fer að sjást að ég drekk Kristal...
"...eitt sktef í einu og þá tekst manni allt sem manni langar.. Það er líka eitt sem þetta kókbyndindini gerir er að núna finn ég meira brag af sígarettunum og mér finnst það VOOOONNNNT...
og ég hugsa mig frekar um núna hvort mig langi virkilega í rettu... þannig að allt þetta er á réttri leið ...
Ég er líka að fara í vital inná Krisnes í næstu vikur með læknunum þar og ætla þeir að hjálpa mér að nýta tíman á meðann ég er á biðlista þangað ... ég var ekkert smá glöð að heyra hvaða læknir verður með mig... Hann Friðrik Vagn ... hann er pabbi hennar Hildar á Te&kaffi sem ég var að vinna með/hjá um árið... þessi fjölskylda er svo yndisleg... ég veit allavega að mér kemur til með að lynda við hann og treysta... sem skiptir miklu máli...
Jæja nóg blaðr í bili... Guð geymi ykkur öll... KNÚS OG KOSSAR í bloggheim...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 19. október 2008
Sunnudagur að kveldi kominn...
Góða kvöldið kæru lesendur...
Mikið er gaman og gott að vera til ... ég get nú bara ekki sagt annað... já ég segið þetta því að ég horfi frammá við og sé ljós og yndislegt líf... vitinn minn lýsir mér leiðina þangað sem mér er ætlað að fara. Hetjan mín er á hægri bataleið, ég er búinn að sjá hvað ég þarf að gera til að lifa góðu lífi, við eigum yndislegt fólk að... já vá... ég sé það svo greinilega núna hvað ég á frábært fólk að ... mamma, Hallgrímur, Dóra, jenný, Mona, Þráinn, Guðrúna Elísabet, Hanna, Inga svilkona, Gummi fyrrverandi mágur, Maríja Jesp, Silla, Anna Catarína sjúkraþjálfinn minn og vinkona, Ármann, Sigþór, Svandís, Krumma, Bogga, Óttar bróðir og Hlín mákona, Kristín Þöll og Biggi, Anna Hjúkka, Hrefna og Árni, Ditta, Faxi, Sæmi, Helgi Vilberg og Soffía, Hjartans Bjössi, Hrönn og Haddi, Rakel, Sigga Lilja, Sisa og allir bloggvinir mínir og lesendur hér... svo allir í Mývatnsveit, allt starfsfólk á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og allir sem hafa hugsað til okkar...
VVVÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ.... hvað ég er RÍK og LÁNSÖM..........
Það er mér svo augljóst að ég er ofboðslega heppin og lánsöm að eigar svona mikinn auð af góðu fólki í kringum mig... Ég sagði bara síðast í síðustu viku að ég og mín litla fjölskykda... en núna sé ég að mín fjölskylda er alls ekki lítil... hún er stór og vel búin af hlíkju og gleði... Það er ekki sjálfgefið að maður eigi svona góða að og þarf maður að rækta garðinn til að hann blómstri og hefur minn svo sannalega blómstrað síðustu daga. Það eru svo margir sem hafa hjálpað mér síðustu mánuði og langar mig svo að endurgjalda greiðann og vil ég ýtreka að ef ég get hjálpað eða gert eitthvað fyrir ykkur þá vitið þið hvar er hægt að ná á mér...
Hetjan mín er búin að vera svo yndislega þægur og duglegur um helgina og það er svo magnað að horfa á hann ná sér í orku og styrk með hverjum degi sem líður. Hvann er orðinn svo fullorðinn á stuttum tíma og sýnir svo mikinn þroska og styrk. Hann t.d. lærði um helgina allan heimalærdóminn sem hafði safnast upp síðan skólinn byrjaði... allt á einu bretti... klárað að lesa allar lestrarbækur sem hann var með... Þvílík elja.. það er nefnilega þannig að ef minn maður ákveður eitthvað þá verður það... sama hvað tautar og raular... Tær snilld... og þannig á það líka að vera í lífinu að ef maður vill eitthvað þá vinnur maður hörðum höndum til að ná því ekkert múður... hehehee... já það er svo merkilegt hvað maður getur lært af þessum yndislegu börnum.
En núna á þessum kyrra sunnudagkvöldi þá vil ég kveðja með hlíju og gleði... Einnig vil ég byðja Guð um að senda öllum sem hafa hjálpað okkur og hugsað til okkar, byrtu og styrk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)