Guð..

Guð gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breitt, kjark til að breita því sem ég get breitt og vit til að greina þar á milli…

Góði Guð!
Þakka þér fyrir allt það sem þú hefur veitt mér í lífinu, alla þá lærdóma og styrk til að vera betri manneskja í dag en í gær.  Ég þakka þér fyrir að hafa sennt mér ljósgeislann minn sem hefur kennt mér meira en orð fá lýst, hann hefur veitt mér mestu gleði og sorgir mínar og ég væri ekki nein manneskja ef ekki væri fyrir hann. Tilvegar hans lætur allt veraldlegt fuðra upp og verða eingu en það eina sem ég sé er ljósið í hjarta hans og hvað hann er mikil Guðs gjöf fyrir heiminn. Ég trúi því að hann sé hér á jörðu með mikinn tilganga og sé ég ekki að þeim tilgangi sé náð því að heimurinn verður betri fyrir hann í framtíðinn. Ég trúi því af öllu hjarta að hann eigi eftir að snerta við mörgum sálum og gera tilveru okkar allra mun betir með návist sinni í framtíðinni og því byð ég þig að linna þjáningu hans og heila í burtu það óheila sem er að hrjá hann núna. Guð! hreinni og fallegri sál er ekki til … sterkari og traustari manneskju er ekki hægt að finna… því byð ég hjálpaðu okkur að verða heil að nýju. Trú mín á kraftavekr þín eru óhagganleg og einn þú getur framkvæmt þau.  Við göngum um okkar dimma dal óhrædd því við vitum að þú  leiðir okkur styrkri hendi. Veittu okkur styrk og ljós til að halda baráttuni áfram og lýstu okkur veginn að heilu lífi og tilveru… sýndu okkur ljós þitt svo við getum fylgt því … Drottinn! Styrkur þinn er máttugur, sýndu mér leiðina að styrknum og tilgangi þessa ferðalags okkar mæðgina svo ég geri haldið áfram…
Drottinn … verndaðu alla þá sem hafa styrkt okkur og hjálpað því það fólk er líka Guðsgjafir og eiga þau öll þína vernd og styrk skilið.

Amen  

bæn mín

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Amen.Falleg færsla.Guð blessi ykkur

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 22:57

2 identicon

Falleg bæn, beint frá hjartanu   Sendi áfram hlýja strauma og ljós...knúz líka

Guðrún (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 08:36

3 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Fallegt... Guð veri með ykkur

Guðrún Hauksdóttir, 25.4.2008 kl. 10:38

4 identicon

Innlegg í BBB

Drottinn er minn hirðir og mig mun ekkert bresta

Kristjana Hrund (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 21:12

5 identicon

Megi algóður guð gefa ykkur góða heilsu og hamingju í framtíðinni.

Rakst óvart hér inn á síðuna þína og bara verð að senda ykkur kærleikskveðjur,þvílíkar hetjur.

Ég mun byðja fyrir sini þínum í bænum mínum, vonandi hef ég þitt leifi til þess þó við þekkjumst ekkert.

Linda (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 23:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband