Sunnudagur að kveldi kominn...

Góða kvöldið kæru lesendur...

Mikið er gaman og gott að vera til ... ég get nú bara ekki sagt annað... já ég segið þetta því að ég horfi frammá við og sé ljós og yndislegt líf... vitinn minn lýsir mér leiðina þangað sem mér er ætlað að fara. Hetjan mín er á hægri bataleið, ég er búinn að sjá hvað ég þarf að gera til að lifa góðu lífi, við eigum yndislegt fólk að... já vá... ég sé það svo greinilega núna hvað ég á frábært fólk að ... mamma, Hallgrímur, Dóra, jenný, Mona, Þráinn, Guðrúna Elísabet, Hanna, Inga svilkona, Gummi fyrrverandi mágur, Maríja Jesp, Silla, Anna Catarína sjúkraþjálfinn minn og vinkona, Ármann, Sigþór, Svandís, Krumma, Bogga, Óttar bróðir og Hlín mákona, Kristín Þöll og Biggi, Anna Hjúkka, Hrefna og Árni, Ditta, Faxi, Sæmi, Helgi Vilberg og Soffía, Hjartans Bjössi, Hrönn og Haddi, Rakel, Sigga Lilja, Sisa og allir bloggvinir mínir og lesendur hér... svo allir í Mývatnsveit, allt starfsfólk á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri og allir sem hafa hugsað til okkar... 

VVVÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ.... hvað ég er RÍK og LÁNSÖM..........

 Það er mér svo augljóst að ég er ofboðslega heppin og lánsöm að eigar svona mikinn auð af góðu fólki í kringum mig... Ég sagði bara síðast í síðustu viku að ég og mín litla fjölskykda... en núna sé ég að mín fjölskylda er alls ekki lítil... hún er stór og vel búin af hlíkju og gleði... Það er ekki sjálfgefið að maður eigi svona góða að og þarf maður að rækta garðinn til að hann blómstri og hefur minn svo sannalega blómstrað síðustu daga. Það eru svo margir sem hafa hjálpað mér síðustu mánuði og langar mig svo að endurgjalda greiðann og vil ég ýtreka að ef ég get hjálpað eða gert eitthvað fyrir ykkur þá vitið þið hvar er  hægt að ná á mér... 

Hetjan mín er búin að vera svo yndislega þægur og duglegur um helgina og það er svo magnað að horfa á hann ná sér í orku og styrk með hverjum degi sem líður. Hvann er orðinn svo fullorðinn á stuttum tíma og sýnir svo mikinn þroska og styrk. Hann t.d. lærði um helgina allan heimalærdóminn sem hafði safnast upp síðan skólinn byrjaði... allt á einu bretti... klárað að lesa allar lestrarbækur sem hann var með... Þvílík elja.. það er nefnilega þannig að ef minn maður ákveður eitthvað þá verður það... sama hvað tautar og raular... Tær snilld... og þannig á það líka að vera í lífinu að ef maður vill eitthvað þá vinnur maður hörðum höndum til að ná því ekkert múður... hehehee... já það er svo merkilegt hvað maður getur lært af þessum yndislegu börnum.

En núna á þessum kyrra sunnudagkvöldi þá vil ég kveðja með hlíju og gleði... Einnig vil ég byðja Guð um að senda öllum sem hafa hjálpað okkur og hugsað til okkar, byrtu og styrk. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Knús vina mín

Svanhildur Karlsdóttir, 19.10.2008 kl. 20:43

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

þú launar alla greiða með því að standa þig eins vel og þú ert að gera, ég er viss um að allir eru sammála um það

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 19.10.2008 kl. 21:16

3 Smámynd: Aprílrós

Er mjög svo mikið sammála Elínu Sigríði ;) Knús til þín og hetjunnar þinnar. ;)

Aprílrós, 19.10.2008 kl. 21:26

4 Smámynd: Monika Margrét Stefánsdóttir

Einu launin sem ég ætla að þiggja af þér elsku vinkona er að meiga koma til þín eða þú til mín og við hlægjum saman, grátum saman og þegjum saman. Ég vil hafa ÞIG eins og þú ert....

Knús og kossar elsku duglega Maggan mín

Monika Margrét Stefánsdóttir, 19.10.2008 kl. 22:22

5 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Það er svo gott þegar að maður nær að rækta með sér þakklæti,lífið hreinlega skiptir um lit. Það hefur virkað fyrir mig  sem besta meðal í mótlæti. Gaman að heyra hvað þú ert vel stemmd. knús á þig og þína..

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 19.10.2008 kl. 22:32

6 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Gott að sjá að ljósið skín skært. Fallegur pistill hjá þér hetja. Guð veri með ykkur áfram alla leið upp brekkuna, því þangað munuð þið ná Magga :)

Hólmgeir Karlsson, 19.10.2008 kl. 23:05

7 identicon

Gott að heyra að það er allt á réttri leið.

Kristjana Hrund (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 15:05

8 identicon

Magga mín, það er gott að heyra hvað þú ert í miklu andlegu jafnvægi þrátt fyrir mótlætið sem hefur dunið á ykkur mæðginum. En eins og Krumma segir þá er þakklæti besta meðal í mótlæti og þar ert þú að skora 10 !

Þakka þér fyrir að vera vinkona mín.

Knús, Bogga

Borghildur Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 10:09

9 identicon

Takk fyrir mig, alltaf gott og gaman að fá hrós...þótt ég ætlist aldrei til þess, ég er hér fyrir þig og ykkur án skilyrða af því að mig langar til þess og þykir vænt um ykkur

 Knús...

Guðrún E (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband