Ég á ekki til orð ...

... já það er ekki oft sem skessan ég verð orðlaus en símtal sem ég fékk í dag hefur gert það að verkum að ég er búinn að þaga liggur við í 4 tíma... og það litla sem ég hef sagt hefur verið annars hugar... þessu átti ég einganveginn von á... en sýnir hvað það eru órtúlega margir sem hugsa til okkar mægina á þessum síðustu og vestu. Þær tilfinningar sem þetta símtal vakti eru ótrúleg gleði, hlíja, margfalt þakklæti, væntumþikja og ofboðslega mikið ljós... Já... ég bara er ennþá hlessa en óendanlega glöð.  Símtalið var frá maneskju sem er í Kvennfélagi Mývatnsveitar og hafði verið tekið sú ákvörðun að þær ætluða að styrkja okkur mæginin um umtalsverða fjáræð.

Mývatnsveit var heimili mitt í nokkur tíma og mamma bjóð þar í 10 ár og hefur mér alltaf fundist sveitin vera mitt "heim" en ekki grunaði mig að vera mín þar hafði þau áhrif að eftir hefði verið tekið... en það er augljóst að það eru mörg hjörtu sem slá til okkar núna og það er svo yndisleg tilfinning að finna... Ég kem til með að fara uppí sveit og knúsa alla þá sem að málinu koma því það eiga þær sko sannalega skilið.

Það er svo ótrúlegt hvað það eru margir sem hafa stutt okkur síðustu 10 mánuðina...T.d. það yndislega teymi (hjón) sem studdu okkur í sumar þega á reyndi og þeir einstaklingar sem hafa lumað pening inn á styrktarreikninginn hans Ragnars... og svo núna þær yndislegu konur sem eru í Mývatnsveit...  Ég hefði ekki trúað því að ég og sonur minn höfum í gegnum tíðina náð til svona mikils af fólki að það virðist vera og er ég mjög glöð með það. Það sem mér finnst líka merkilegt er að þessir styrkir koma alltaf á órtúlega fullkomnum tíma það er eins og þetta sé skipulegt á æðri stöðum. Hefur þetta gert það að verkum að núna sé ég framm á að geta haldið jól og notið þess að hjálpa Hetjunni minn og sjálfri mér næstu mánuði... án þess að fara á hausinn... nema að örorkan gangi ekki í gegn, en ég hugsa ekki þannig núna á svona yndislegum tíma þegar fjöldi fólks sýnir okkur þennan frábæra stuðning...

Heart ÞÚSUND ÞAKKIR  OG HLÍJAR KVEÐJUR TIL Heart

Heart YKKAR ALLRA SEM HUGSIÐ SVONA Heart

Heart FALLEGA OG VEL TIL OKKAR... Heart 

HeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Já, það er ennþá til gott fólk í heiminum, og þið eigið allt gott skilið...

Knús

Svanhildur Karlsdóttir, 17.10.2008 kl. 20:03

2 Smámynd: Aprílrós

Gleðifréttir gleðja alltaf mitt hjarta og ég samgleðst ykkur svo innilega því þið eigið allt það besta skilið. Þið eruð svo dugleg og jákvæð. Eigið góða helgi elskulegust ;)

Aprílrós, 18.10.2008 kl. 08:31

3 Smámynd: Monika Margrét Stefánsdóttir

Mikið er gott að heyra af þessum góðu konum..... Þær eru að gera kraftaverk

Kiss og knús mín kæra

Monika Margrét Stefánsdóttir, 18.10.2008 kl. 15:21

4 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Góðar fréttir sem gott er að lesa um :)

Hólmgeir Karlsson, 18.10.2008 kl. 16:35

5 identicon

Kæru mæðgin.

Gaman að lesa fréttirnar um símtalið frá þessum góðu konum,já það er fullt af góðu fólki í heiminu.Sem er tilbúið að hjálpa þeim sem þurfa.En gangi ykkur bara vel áfram og megi framtíðin ykkar verða björt og falleg.

Kveðja kristín

Kristín Reykjalín (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 11:50

6 identicon

Frábært innilega til hamingju það er nefnilega einhvernveginn þannig að ef maður heldur í vonina og trúnna og sýnir dugnað og kjark eins og þið hafið gert þá fær maður það launað til baka með einum eða öðrum hætti lifi kvennfélögin og áfram Ísland og þið mæðgin

Sæmi (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 18:11

7 Smámynd: Ragnheiður

Knús á þig , ég elska það að koma hér inn og lesa góðar fréttir

Ragnheiður , 19.10.2008 kl. 19:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband