Sunnudagur, 21. september 2008
Náttfatadagur vegna hita...
Góðann dag á sunnudegi...
Það var augljóst strax í morgun að hér á bæ yrði náttfatadagur. Hetjan mín var yndislegur í morgun og áttaði ég mig á því að það var ekki alveg í lagi... og niðurstaðan er sú að snúður var kominn með hita... Það er nefnilega þannig með Hetjuna mín að þegar hann fær hita þá verður hann ofur rólegur, svo kemur hann annaðslegi til mín og hjúfrar sig uppí hálsakotið á mér, með öllum sínum þunga og styrk... hann er nefnilega ekkert ungabarn ennþá þessi elska... og það er ekki auðvelt að hafa hann á manni núna, hvernig verður þetta þegar hann er orðinn 15 ára og þarf kúr hjá mömmu... hehehe... úfff... því það stefnir í það að hann verði mun hærri en mamman og kubbur eins og báðir foreldrar...Þannig að við erum búin að kúra okkur hér heima í allan dag... knúsast og spjalla í rólegheitunum ... horfa og sniglast hér heima... lesa og lúra... svona eiga allir sunnudagar að vera nema ekki hitinn sem Hetjan mín er með... Þetta þurftum við svo sannalega bæði tvö... En auðvitað vona ég svo heitt að það er ekkert meira að gerast hjá elskunni minni því að hann má ekki við meiri niðursveiflum eftir síðustu mánuði... hann á svo skilið að þetta sé á réttri leið... kannski er þetta einhver smá flensa eða kvef sem hann hefur náð sér í í skólanum síðustu daga... það eru jú miklu meiri líkur á að hann næli sér í smápestir þvi að ofnæmiskerfið hans er jú ekki starfandi þessa dagana ... því lyfin keyra allt niður til að geta náð yfirtöku á sýklinum fræga.
Eftir daginn í dag tekur við full vinna í því að slást við kerfið um það sem okkur ber að fá frá því... úfff... ætla ekki einusinni að reyna að tala um það núna... því þetta er svo mikið bákn og gerir mann endalsut stressaðan hvað þá núna þegar mánuðirnn er hálfnaður því að þá fer maður að þurfa að hugsa um hvernig maður hefur efni á því að eiga í matinn og fyrir nauðsynjum .... Svo er að hjálpa Hetjunni í skólanum og sjá hvort við finnum ekki einhverja góða niðurstöðu með félagslegu hliðina sem er búin að plaga snúðinn mikið síðustu daga... Svo er það endurhæfing mín sem ég hef ekkert getað sinnt en er kominn LÖNGU tími á... en nóg um það...
Núna ætla ég að skríða uppí hjá hetjunni minni og nudda táslurnar hans... honum FINNST það SVVVO gott ... og það er svo yndisleg tengsl sem við eigum þegar ég nudda hann...
Góða nótt kæru lesendur og meigi Guð geyma ykkur
Athugasemdir
Hafðu gott kvöld með stráksa þinum og góða nóttina. ;)
Aprílrós, 21.9.2008 kl. 19:32
knús knús knús... þú ert svooooo dugleg sæta... þú ert sko algjör hetja í mínum augum sæta mín.... knús knús knús aftur því að maður fær aldrei nóg af þeim um ævina.... :) LOVE á þig
Þórunn Eva , 21.9.2008 kl. 20:58
Guð geymi ykkur bæði
Ragnheiður , 21.9.2008 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.