Kominn heim með barnið...

Halló...

jæja þá er ég kominn heim með barnið. Soninn sem ég saknaði svo mikið í gær... ég er búinn að knúsa hann og kúra við... segja honum að hann sé mér allt í lífinu. Honum finnst voða gott að hafa mömmu sína, en því miður hefur farðirinn ekki enn látið heyra frá sér og svarar ekki þegar við hringjum þannig að ég veit ekki hvort hann sé hættur við að leifa honum að koma til sín. Ég þarf að fara suður á miðvikudaginn og kveðja hann Hannes frænd og þá förum við bara saman í það og leifum föðurnum að missa af því dásamlega lífi sem það er að hafa barnið með sér. Því miður hefur hann ( faðirinn ) ekki verið sá stabílasti í lífi snúðsinns og eru farnar að vakan spurningar og samtöl sem er soldið ervitt að svara, afhverju svara hann mér ekki??, afhverju hringir hann ekki??, afhverju má ég ekki vera núna hjá honum?? afhverju kemur hann ekki í afmælið og svo framvegis...  Þessu finnst mér voðalega ervitt að svara því ég veit ekki  ástæðuna og auðvitað langar mig heldur ekki að særa barnið með staðreindum. Ég er kominn í soldla klípu sem ég þarf að hugsa vandlega hvernig maður vinnur það... barnið er orðið svo stórt að það er farið að spyrja og langa að fá að vita... hvernig á ég að snúa mér í þessu...

En á meðann við hugsum og bíðum eftir að heyra frá honum ákváðum við að fá okkur pizzu og brauðstangir... hehehee.. það er vídeókvöld hjá okkur mæðginunum... pizza og Star Wars.... fullkominn blanda... Við mæðginin erum nefnilega heilluð bæð að Star Wars og eigum við alla seríuna.  Reyndar var ég áðann að horfa og þá sagði Obi-Wan Kenobi að mátturinn sé orkusvið sem vinnur með okkur og í gegnum okkur... þetta minnti mig á he Secret... og sömu humgmyndafræði ... hehehe.. sniðugt... hvenær voru sögurnar um Star Wars skrifuð... ég veit það ekki en það er langt síðan.. Fyrsta  myndin var gerð 1977... þannig að þið sjáið að þessi vitneskja hefur verið til staðar lengi... hehehe...

Jæja góða fólk ... njótið lífsinns saman og með öllum þeim sem ykkur þykir vænt um.

GUÐ GEYMI YKKUR... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmgeir Karlsson

Hæ Magga.

Sannleikurinn er sagna bestur hefur oft verið sagt, en þú skalt nú reyna að komast að því sjálf hver hann er áður en þú reynir að útskýra þetta fyrir snáðanum. Star Wars og pizza er fín blanda, en fylla þó ekki upp í föðurímyndina nema skamman tíma. En ef ég á að ráðleggja, þá skaltu reyna það sem þú getur til að ná í pabbann og fá svör, en hafðu um leið hugfast að fátt er eins bölvað og að blekkja börnin. Þinn er líka ekkert smábarn lengur og kann örugglega að lesa bloggið þitt til að komast að því hvað er í gangi.

Bros og hlý bloggkveðja :)

Hólmgeir Karlsson, 6.8.2007 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband