Þriðjudagur, 3. júlí 2007
Tilfingar...
Jæja... núna er gullið mitt sofnað eftir langann, spennandi dag...
Ég hef verið að ryfja upp í dag þær tilfingar sem hafa þotið inn í líf mitt síðustu 6 árin frá því að Ragnar mætti á svæðið kl. 10:10 3.júlí 2001. Ég man hvað mér þótti svo sárt að vita hvað hann þurfti að berjast fyrir lífinu fyrstu dagnana... mér fannst ég hafa brugðist honum svo að ég grét mig í svefn fyrstu næturnar. Svo að sjá hann í dag... stórann, hraustann og svo fallegann verða 6 ára og leiðinni í skóla... maður getur ekki eignast neitt dýrmætara í lífinu en þetta. EKKERT er betra og yndislegra.
Einlægur og þreyttur tók hann utann um mömmu sína áðann og sagði... " þú ert besta mamma í heimi, takk fyrir góðann afmælisdag"... ég kem til með að gráta mig í svefn í kvöld af gleði yfir þessum fallegu orðum.
Góða nótt kæru vinir og Guð blessi ykkur eins og hann hefur blessað mig...
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.