Mánudagur, 26. júní 2023
Sundlaug nr. 2 er Sundlaugin í Hrísey - Að sigla í sund.
Í dag var farið í sundlaug nr. 2 og varð sundlaugin í Hrísey fyrir valinu. Ég reikna ekki með að sigla í aðrar sundlaugar en þetta var skemmtileg ferð. Ég hef alldrey komið í þessa sundlaug en hún er virkilega flott og snyrtileg, vel viðhaldið greinilega og bara allt virkilega til fyrirmyndar. Hún er reyndar stutt 12,5 m. og því var hellingur af viðsnúningum en ég náði mínu settu 500 m. og meira að segja 50 meira og svo auðvitað er kalt kar þarna og skellti ég mér í það eftir sundið.
Það er mitt mat að það er virkilega þess virði að fara í sund í Hrísey ef fólk er á svæðinu og ég tala nú ekki um í svona dásamlegu veðri og var í dag. Það skemmdi ekki fyrir að vita að einn af sundlaugarvörðunum þarna er hún Hanna sem vinnur í Akureyrarlaug á veturnar og einn af mínum allra uppáhalds, maður fékk bara knús þegar ég mætti... Dásamlegt, með í þessari ferð var einn af uppáhalds ferðafélögum mínum með, hún mamma sem naut þess að finna sjáfar ilminn og horfa á fuglana... það minnir hana á æskuna á Ísafirði..
Þetta er virkilega þess virði að segja á dagskrá hjá öllum...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 15. júní 2023
Sundlaug nr.1 af 50 er Þelarmerkur sundlaug - Þar lærði ég að synda.
Ég semsagt stakk mér til sunds í Sundlauginni á Þelarmörk í dag og svamlaði það mína 500 m. og að sjálfsöðu var kaldakarið nýtt líka.
Þessi sundlaug varð fyrir valinu sem laug nr.1, því að þarfna lærði ég að syndi og þau sundtök og tækni sem ég nota í dag eru öll fra Helga íþróttakennar. Þarna æfði ég sund með UMSE á síðustu öld.
Þelamerkulaugin er nú reyndar ekki sérlega góð laug til að synda mikið í vegna þess að hún er höfð heitari en venjulega og því mögnuð til að njóta og slaka á í... Aðstaðan og laugin öll til mikillar fyrirmyndar og er hún í miklu uppáhaldi hjá mér.
Bloggar | Breytt 26.6.2023 kl. 19:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 15. júní 2023
Áskorunin: 500m. í 50 sundlaugum fyrir fimmtugt.
Það eru orðin ca. 9 ári síðan ég hef skirfað færslu inná þessa síðu en núna fyrir nokkrum vikum var skorað á mig og datt mér í hug að nota gamla bloggið mitt til utanumhalds á því verkefni.
Þannig er staðan að ég varð 49 ára í síðustu viku og áskorunin snýr að því að ég syndi 500 m. í 50 sundlaugum á Íslandi áður en ég verð fimmtug á næsta ári. 'Eg hef síðustu 10 mánuði synt mikið og hefur mér þótt það ferðalag skemmtilegt og hef semsagt ákveðið að taka þessari áskorun.
Hér inn langar mig til að segja ykkur frá þessu ævintýri sem ég er að fara í. Ég er mjög vanaföst kona og það á eftir að vera verkefni að mæta í allar þessar sundlaugar sem ég hef ekki komið í áður . En þetta verður líka svolítill þvælingur til að ná þessu og sé ég framm á að ég þurfi að fara í dagsferðir til að synda í 1-2 sundlaugum sama daginn... Það er nú ekki málið að synda nokkrum sinnum því ég er vön að synda 1700-2000 m. á æfingu 5 daga vikunar þannig að 500 m. er vel viðráðanlegt.
Þar sem það var verkfall hjá BRSB á afmælisdaginn minn gat ég ekki byrjað þá, og svo fór ég suður á þriðjudag til að vera peppgella í annasri 50 áfmælis áskorun sem kveikti endanlega í mér... Á Leiðinni heim/norður í dag kom þetta til mín... í dag hef ég 11 mánuði og 25 daga til að ná Vinkonu minni í aldri... (við erum jafn gamlar í 5 daga á ári)
Þannig að þetta hefst núna...
Let´s do this...
Bloggar | Breytt 16.6.2023 kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)